Your cart is currently empty!

Íslenskt Astaxanthin – Fæðubótarefni
Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, unnið úr smáþörungum og er talið vera 6.000 sinnum öflugra en C-vítamín.
Íslenskt Astaxanthin getur:
- Minnkað bjúg og bólgur
- Aukið úthald og endurheimt
- Verndað vöðva, hjarta og æðakerfi, heila, augu og húð
- Verndað húðina gegn UV geislum sólar
Fyrir hverja?
- Íþróttafólk sem vill auka endurheimt
- Fólk sem er með bjúg og bólgur í líkamanum
- Einstaklinga sem glíma við eymsli í liðum
- Einstaklinga sem glíma við exem þ.m.t. sólarexem
Birtar hafa verið yfir 200 ritrýndar vísindagreinar sem sýna fram á gagnsemi astaxanthin fyrir líkamann. Rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald, orku og endurheimt. Astaxanthin er talið auka þrek og vöðvamyndun við æfingar auk þess sem það er talið veita betri endurheimt vöðva eftir átök. Rannsóknir sýna einnig að astaxanthin ver húðina gegn útfjólubláum geislum sólar og dragi þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar. Talið er að húðin þorni síður og hrukkist eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir. Astaxanthin getur einnig virkað vel á bólgur í liðum og styrkt augnheilsu.
Inniheldur astaxanthin frá íslenska fyrirtækinu Algalíf, sem staðsett er í Reykjanesbæ. Algalíf er dyggur samstarfsaðili Saga Natura í þróun á virkum náttúruefnum í hæsta gæðaflokki. Astaxanthin er unnið úr smáþörungum með hreinu íslensku vatni og orku. Inniheldur einnig E-vítamín.